Thursday, December 11, 2008

Jólasmjól

Gott kvöld
ég er hrikalega léleg að blogga
en segi bara allt gott - allt gott - allt gott að frétta
mun sennilega leggja fram annál ársins hér síðar í desember
það er svo margt búið að gerast - lífið er skrýtið og skemmtilegt

eitt gott sem ég fann í ár er hljómsveitin Kings of Leon - hlustið og njótið
Hrikalegir-hrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrikalegir - þó ekki krikalegir

Þar til næst

Ninns

Thursday, June 5, 2008

Dal einn vænan ég veit...

verndar Drottinn þann reit - og ég verð bara heit í hjartanu mínu af því þangað er ég að fara Á MORGUN!!!!!!!!!!!!!!!!!!

kem alltaf aftur- vonandi nokkrum freknum og reynslunni ríkari.

Lag næstu daga er með frábærri kanadískri söngkonu sem ég ég kynnti mér úti Feist heitir hún og lagið er My Moon My Man

njótið lífsins og sumarsins

Saturday, May 31, 2008

Skrýtið

hvernig ég missi alltaf af því þegar jörð skelfur, var í Nova Scotia þegar ósköpin dundu yfir núna. Undarlegt að koma heim morguninn eftir í þetta andrúmsloft. Allir heilir og útlitið alveg ágætt hjá flestum, en sumir eru víst búnir að missa heimilin sín og ég get ekki ímyndað mér hvernig það er.

Núna skín sólin og einhver er byrjaður að slá blettinn sinn. Það er gott.

Nova Scotia er athyglisverður staður og mikið af humri þar, meira að segja humarhúmor. Ég sá indjána.

Lag dagsins er með Bob Dylan - Visions of Johanna- ég missti af karlinum, en bætti mér það upp með því að kaupa gæðadisklinginn Blonde on Blonde.

Tuesday, May 20, 2008

Mæli með.....

Queen tónleikum Kórs Fjölbrautaskóla Suðurlands- Magni syngur - rokk og ról- var áðan á generalprufu, hljómaði mjög vel.

lag dagsins Save me með Queen - hrikalega flott.
http://youtube.com/watch?v=k8cYDnthloI


Dingaling dingaló

Monday, May 19, 2008

Það er

vor í lofti og bjart yfir öllu, mann langar bara til að dansa.



Dönsum við lög dagsins - Dancing in the moonlight með Toploader.
http://youtube.com/watch?v=DHkmLEhFq44

og Mas que nada með Sergio Mendes og Black Eyed Peas.
http://youtube.com/watch?v=LrXBC4YLleg



Gleði - iðelg

og hvað svo?

já - mikið búið að liggja fyrir hjá mér undanfarnar vikur.
Fór í Skagafjörð og skemmti mér með Geirmundi og öðrum furðufuglum - mæli með gistiheimilinu Bakkaflöt - frábær matur og frábær matur og frábær matur og gott fólk þar að finna.
Svo var afmælisárshátíðin hjá Leikfélaginu um helgina ótrúlega skemmtileg, allt gekk upp og gleðin var allsráðandi.
Núh svo er ég að fara til útlandis um næstu helgi.

En fyrst verð ég gæslumaður á Queentónleikum og ég næ í skottið á Eurovisjón, part 1.

Lag dagsins er Don't stop me now með Queen - stuðboltalag- gott til að hoppa inn í vikuna.

Sunday, May 18, 2008

Gott kvöld

eru ekki allir í stuði? er búin að færa mig hingað yfir þar sem hinn vistunarstaðurinn var ekki alveg að virka.

Er að hlusta á hrikalega flotta hljómsveit núna The Black Keys - mæli með henni