Saturday, May 31, 2008

Skrýtið

hvernig ég missi alltaf af því þegar jörð skelfur, var í Nova Scotia þegar ósköpin dundu yfir núna. Undarlegt að koma heim morguninn eftir í þetta andrúmsloft. Allir heilir og útlitið alveg ágætt hjá flestum, en sumir eru víst búnir að missa heimilin sín og ég get ekki ímyndað mér hvernig það er.

Núna skín sólin og einhver er byrjaður að slá blettinn sinn. Það er gott.

Nova Scotia er athyglisverður staður og mikið af humri þar, meira að segja humarhúmor. Ég sá indjána.

Lag dagsins er með Bob Dylan - Visions of Johanna- ég missti af karlinum, en bætti mér það upp með því að kaupa gæðadisklinginn Blonde on Blonde.

No comments: